Forgarður Helvítis - Gelding óskhyggjunnar (Castration of Wishful Thinking) Lyrics
Eftir að reiðar konur
brugðu hníf
milli fóta mér
fór ég að efast
um tilgang breytni minnar
Alveg eins og
í tvöþúsundáragömlu sögunni
eru menn ekki spurðir
áður en skellt er á þá
syndum bræðra sinna
En hvern hef ég
til að ásaka
mitt glerhús
þolir ekki grjótkast
frekar en annara
Það er víst allt sama blóðið
sem fyllir vefinn
Í hræsni minni
hef ég skapað mér sakleysi
úr óskhyggju
Skerið
Skerið
þið reiðu konur
It takes a sexist
to kill a sexist